Hér kemur ágæt umfjöllun um auka-efni í snyrtivörum sem birtist inni á mbl.is í dag:
Yfir 500 aukaefni dag hvern
Þörf lesning fyrir alla þá sem er ekki sama um auka-efni í vörum sem þeir nota.
Kv.
E
þriðjudagur, 5. mars 2013
miðvikudagur, 2. janúar 2013
Gleðilegt nýtt ár
Og takk fyrir samfylgdina á árinu sem er að líða..
Vona svo sannarlega að jólin og áramótin hafi verið ykkur ánægjuleg :)
Það má á vissan hátt segja að árið 2012 hafi verið boot-camp í að venja mig af ákveðnum neyslu-venjum, það er að segja að hætta að kaupa mér of mikið af flíkum sem ég í raun kemst ekki yfir að nota.. Vona svo sannarlega að ég hafi náð að temja mér nýjar neysluvenjur á liðnu ári ;)
Svo áramótaheit ársins 2013 verður klárlega að nota fötin mín meira ;) JEY.. ekki leiðinlegt áramótaheit það!
Önnur áramótaheit?
Ég er stanslaust að reyna að bæta mig og temja mér nýja og heilsusamlegri lífshætti, svo það væri ekki úr vegi að huga að því að kaupa sér líkamsræktarkort, spurning hvort ég setji mér fasta líkamsræktardaga - ég er allavega ennþá að standa við gefið áramótaheit fyrir árið 2011, að nota tannþráð 3x í viku og var það sett á fasta daga. Svo kannski ég setji mér fasta líkamsræktardaga?
Áramótaheit 2013
- Taka vítamín daglega
- Þurrbursta húðina 1x í viku (misheppnað áramótaheit frá 2012) *Note to self: setja fastan vikudag á það!
- Stunda líkamsrækt amsk. 2 daga í viku *Fastir dagar; fimmtudagar frá og með 17. janúar
- Lesa að minnsta kosti 6 bækur mér til skemmtunar árið 2013
- Fara ekki útúr húsi ómáluð og án ilmvatns
Hver eru áramótaheitin þín?
Luv,
E
Staðsetning:
Reykjavik, Iceland
laugardagur, 29. desember 2012
56% success or epic fail
Jæja, nú er komið að stóru stundinni; uppgjöri ársins!!
Hvernig gekk mér með áramótaheitið 2012? Að kaupa engin föt, skatrgripi, veski eða skó á Íslandi 2012 (nánari relgur hér). Undantekningar frá reglunum voru að ég mátti kaupa nærföt, ef einhver ómissandi flík eyðilegðist og ég mátti láta gera við það sem var bilað, auk þess sem ég mátti kaupa föt innan skynsamlegra marka ef ég færi erlendis. Ég fór jú með föt og skó í viðgerðir og breytingar.. en ég þurfti ekki að kaupa mér nein nærföt og engin flík eyðilagðist sem taldist vera ómissandi (t.d. gönguskór eða föðurland). Ég fór erlendis á árinu og keypti mér eyrnalokka, stuttbuxur og tvo boli. "Neyðartilfellin" urðu hins vegar ansi mörg hérna heima, og náði ég að eyða 111.501 ISK samtals í föt, innanlands og erlendis á árinu, en það eru tæp 44% af því sem ég eyddi í föt í fyrra (253.481 ISK) svo það er hægt að segja að ég hafi skorið niður um 56% á milli ára. En fór langt yfir 40.000 ISK heimild í fatakaup á árinu :(
En eruð þið þá ekki forvitin að vita hvað ég verslaði á árinu?
111.501 ISK var eytt í; hring, tvenn skópör, tvö veski, tvo boli, stuttbuxur, tvo eyrnalaokka, úr, hárband og kjól.
Ég ætla ekki að leggjast í afsakanir, en hins vegar get ég tekið fram að hér var í mörgum tilfella um afslætti eða tilboð að ræða, í sex tilfellum af þrettán. Það sorglegasta samt var að í byrjun desember var útlitið miklu betra, en ég afrekaði að eyða 43.292 ISK af heildar upphæðinni í desember. Af hverju? Ég sá skó á útsölumarkaði í mínu númeri sem mig var lengi búið að langa í, svo missti ég mig í gleðinni, en hins vegar þarf ég ekki að kaupa mér veski á útsölu í janúar og ég er búin að kaupa afmælisgjöfina handa sjálfri mér 2013!

Innkaup árisins 2012

Efnisorð:
Aukahlutir,
Ferðalög,
Fylgihlutir,
Föt,
Skart,
Skór
Staðsetning:
Reykjavík, Ísland
miðvikudagur, 19. desember 2012
Rauði varaliturinn - follow up
Ég rakst fyrir algjöra tilviljan á leiðbeiningar á netinu hvaða rauði varalitur hentar hvaða húðtóni, sjá hér. Málið vandast þó ef þú átt í erfiðleikum með að flokka hvaða húðlit þú ert með, en litaskiptingin skiptist í; fair, medium, olive og dark. Mæli ég sjálf helst með því að heimsækja einhvern af þeim snyrtifræðingum sem starfa í snyrtivörudeildum apóteka, stórverslana og snyrtivöruverslana og fá þær til að aðstoða þig við valið á þeim lit sem hentar þér best..
Annars er ég með plön um nýtt blogg á nýju ári og nýtt átak, nema á þessu ári verður fjöldatakmörkun á ákv. tegund á neysluvöru.. hmm.. ef ég legg í annað átak það er að segja!
Á ég virkilega að binda mig í báða skóna annað árið í röð? Mynd að láni héðan
Fannst við hæfi að setja stúlku í rauðum ballet-skóm, rautt er jú litur jólanna - spurning hvort ég eigi að bregða mér í rauða skó á aðfangadag.. rauða skó á ég ;)
Luv,
E
Staðsetning:
Reykjavik, Iceland
þriðjudagur, 18. desember 2012
Það fyrsta á nýju ári..
..sem undirrituð kemur til með að gera er að fara að VERSLA á útsölum.
Tveir hlutir eru efstir á óskalistanum mínum.. það er kónga blá semi-gegnsæ siffon blússa og veski! Svo er ég með ákveðna hugmynd að afmælisgjöf handa sjálfri mér - en ég get sagt ykkur strax að ég mun ekki versla mér armband frá Tiffanys eins og ég var jafnvel búin að tala um hér.
Blússa eitthvað í þessa átt, sem er hægt að nota hversdags og við fínni tilefni:
Þessi er frá Tinu Turk - 19.000 ISK á útsölu
Að lokum vil ég vekja athygli lesenda á pinterestinu mínu, en það má nálgast hérna, auk þess sem ég ætla að setja fastan link hérna vinstra megin á blogginu undir tenglar.
Luv,
E
Efnisorð:
Fylgihlutir,
Föt
Staðsetning:
Reykjavik, Iceland
mánudagur, 17. desember 2012
Styttist í samantekt
Það fer að styttast í samantekt ársins, það er samantekt yfir hvað ég keypti af bannlistanum og hversu mikið ég eyddi í fatnað, skó og skart á árinu, innanlands sem utan. Ég var búin að segja ykkur aðeins frá því sem ég keypti erlendis í þessari færslu hér en á algjörlega eftir ótalið það sem ég hef eytt í föt innanlands. Þetta fatabindindi hefur þó ýtt úr vör nýjum og áður óþekktum eyðslu-venjum í formi snyrtivöru innkaupa. Má eiginlega segja að þar sem föt voru tekin út úr eyðslumynstrinu, þá hafi myndast ný þörf á snyrtivörum af minni hálfu. Nýjasta löngunin er Naked 2 augnskuggapalletta frá Urban Decay:
Urban decay naked 2 - 6.311 ISK hér
Þessi palletta er útgáfa nr. 2 af upprunalegri Naked pallettu frá Urban Decay, nema þessi útgáfa nr. 2 er paraben-free. Svo það eru aldeilis góðar fréttir, er mikið að hugsa um að halda að mér höndum í augnskugga innkaupum á næstunni (ekki svosem að ég sé alltaf að kaupa mér augnskugga) og þá kannski frekar kaupa svona palettu næst þegar ég fer vestur um haf. Annars segja þeir sem vit hafa á að maður eigi frekar að kaupa sanseraða og glimmer augnskugga frá ódýrari merkjum, þar sem það er víst auðveldara að búa til góða sanseraða augnskugga heldur en matta. Eigi maður því frekar að kaupa matta skugga frá dýrari merkjum, því maður finnur meira fyrir gæða-mun á möttum augnskuggum heldur en sanseruðum. Urban decay hefur einnig nýlega sett á markað matta augnskuggapalettu;
UD naked basics - 4.670 ISK
Ég efast ekki um að sú matta væri betri fjárfesting til lengri tíma litið, þar sem mattir augnskuggar fara fleirum betur heldur en sanseraðir.. auk þess sem ég á haug af sanseruðum augnskuggum í snyrtidótinu mínu og vantar klárlega ekki fleiri augnskugga.
Áramótaheit næsta árs: mála mig meira og nota makupið sem ég á? Kaupa minna? Það eru allavega fleiri en ég sem eru að endurskoða neysluna sína, en youtuberinn Christine, en ég póstaði einmitt skápa-tiltektinni hennar á bloggið mitt fyrir nokkrum mánuðum, hún ætlar í makeup-kaupabindindi árið 2013, sjá bloggið hennar hér.
Luv,
E
Efnisorð:
Fegurð,
Fylgihlutir,
Föt,
Skart,
Skór
Staðsetning:
Reykjavík, Ísland
laugardagur, 15. desember 2012
Veik í make-up, follow up
Í júní fór ég í verslunarleiðangur í Shop Couture, og keypti mér augnskugga-primer og augnskuggabursta (sjá færslu hér). Ég var búin að lofa gagnrýni á vörurnar og here goes:
Elf mineral eyeshadow primer:
Þvílík snilld, hann svínvirkar, formúlan er húðlituð og hylur um leið bláleika á augnlokunum, og það sem skiptir öllu máli, þá heldur hann augnskugganum á sínum stað allan daginn (og hér erum við að tala um 12 klst vinnudag), án þess að augnskugginn krumpist! Vara sem klikkar ekki á 990 ISK.
Elf crease brush:
Frábær bursti til að setja skyggingu í crease á auganu, virkar vel fyrir litla crease (veit ekki hvernig ég ætti að þýða þetta á íslensku svo crease verður að duga), nota ég svo annan og óþéttari bursta til að jafna skygginguna út og útkoman er frábær! Það sem toppaði svo kaupin var verðið; 490 ISK.
Ég keypti síðar augnskuggabursta frá þeim:
Hann er líka mjög góður, reyndar aðeins ójafn á brúnunum, eins og hárin séu eitthvað ójöfn, og svo fór hann soldið "úr hárum" fyrst, en eftir að ég þvoði hann með smá shampoo, þá hafa sama sem engin hár losnað úr honum.
Luv,
E
Elf mineral eyeshadow primer:
Þvílík snilld, hann svínvirkar, formúlan er húðlituð og hylur um leið bláleika á augnlokunum, og það sem skiptir öllu máli, þá heldur hann augnskugganum á sínum stað allan daginn (og hér erum við að tala um 12 klst vinnudag), án þess að augnskugginn krumpist! Vara sem klikkar ekki á 990 ISK.
Elf crease brush:
Frábær bursti til að setja skyggingu í crease á auganu, virkar vel fyrir litla crease (veit ekki hvernig ég ætti að þýða þetta á íslensku svo crease verður að duga), nota ég svo annan og óþéttari bursta til að jafna skygginguna út og útkoman er frábær! Það sem toppaði svo kaupin var verðið; 490 ISK.
Ég keypti síðar augnskuggabursta frá þeim:
Augnskuggabursti frá elf - 490 ISK
Luv,
E
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)